the icelandic backs are chicks at home

ágúst 8, 2008 af arhus08

Hér sit ég við borðið, sveittari sem aldrei fyrr að borða pizzu á servíettu, drekka coke úr mjög svo vafasömu plast-staupglasi og þarf að hlusta á Birtu röfla um að hún nenni ekki í sturtu. How can you mend a broken heart er á fóninum, við erum umvafnar turkislituðum dúk, jarðaberjadallurinn góði og bláu kertastjakarnir fiffa lúkkið aðeins til, Blue Train – John Coltrane plakatið góða hangir á móti mér, svalahurðin galopin og ég veit ekki hvort hljóðið í bununni sem ég heyri sé úr gosbrunninum eða pissubunan í Chanett. Píanóið góða er á sínum stað og maður spyr sig, af hverju í fjandanum erum við ekki búnar að spila oftar á það í sumar. Birta spilaði reyndar á orgelið í fermingunni minni í byrjun sumarsins, en það var eitthvað voða tæpt. Íbúðin hefur aldrei verið jafn hrein, því við vinkonurnar erum búnar að vinna síðustu daga og nætur við að þrífa. En semsagt, þá sitjum við hérna tvær eftir, ég og Birta og þótt ótrúlegt sé þá er þetta síðasta kvöldið okkar hérna í Danmörku. Ég veit hreinlega ekki hvort ég kýs að gráta eða brosa. Birta kýs hinsvegar að sjóða sér pulsu í eftirrétt.
Ég segi það aftur, ég segi það enn og ég mun örugglega halda áfram að segja það í nokkurn tíma .. shittahólífokk hvað þetta sumar er búið að vera fljótt að líða!!! Ég á ekki eitt einasta orð. Við ætlum svo sannarlega að halda uppá kvöldið í kvöld með því að fá okkur hvítvín að sjálfsögðu og fara á Ali Baba, þess vegna taka leigubíl þangað. Seinasta mission að stela sósunni. Það er ekkert smá skrýtið að vera bara tvær eftir, við erum nýbúnar að venjast því að mamma okkar sé farin, en þegar Halla fór var eins og einhver hefði kippt íbúðinni úr sambandi og það eina sem heyrist er röflið í Birtu.
Mig langaði fyrst og fremst að þakka ykkur stelpur fyrir bestu bestu þrjá mánuði sem ég hef upplifað í lífi mínu. Þetta sumar er bara búið að vera æðislegt og það er bara vegna þess að við chicks erum besta teymi í heimi. þessi bloggsíða er gull og þessar 1439 myndir sem við erum búnar að taka eru að fara í 1439 ramma. Svo ætla ég líka að sýna myndbandið af þér í skóginum að tala við blómið í brúðkaupinu þínu Kristín. Þið eruð bestar stelpur, og ég elska ykkur.
Það eru ekki allir sem lifa af 75 daga djammferð

Takk fyrir endalaus gullmóment …
Fyndnustu lestarferð í heimi, jakkafötin hennar Indru, þegar Birta burstaði í sér tennurnar með tannburstanum hans Benji, spontant djamm á Fedde Le Grand, allir gestirnir sem komu í heimsókn (bæði boðnir og óboðnir) öll helluðu djömmin på Skovvejen, ljótustu dúkar í heimi, allt hvítvínið, djammsvalirnar, allir drykkjuleikirnar sem gengu misvel, öll munchin (7/11, Makkinn, Rhodeys, allt munchið í Alta, Ali Baba, fremtidens snegle, pulsurnar og örugglega margt margt fleira)
kossageitin, da Halla lavede pølser, skokkhringurinn með gulu pílunni (góðu 5 kílómetrarnir), chillin í skóginum, the lovebox, jarðaberjafatan okkar, allir fánarnir, stærstu pizzur í heimi (tvær), steiktasta mánudagskvöld í heimi (haha) , þegar Kristín fór út í búð en það var ekki til neitt munch, þannig að hún keypti bara tilbúnar kransakökur. Allar H&M ferðirnar (shit) , öll hlátursköstin, þegar Birta xxx inni á videoleigunni, Eydís á Skype, göngutúrarnir heim klukkam 7 á morgnanna eftir djammið, allt cokið sem við erum búnar að drekka í sumar, passamyndatakan okkar Birtu sem fór úrskeiðis, Munich tónleikarnir! (grát) Allar klósettferðirnar í myrkri og tala nú ekki um sturtuferðirnar, plömmerinn í strætóskýlinu, allar stúdentsveislurnar, öll fimmtudagskvöldin á Buddy, súlan, öll kúrin á vindsænginni, skiltið og bareflið (sem við vitum ekkert hvað við eigum að gera við núna), öll þau skipti sem Birta hringdi í Bauhaus og sagðist ,,desværre være syg” , þegar strákarnir komu í heimsókn, mohito djamm, Grøn koncert, þegar Birta og Kristín lágu í skóginum til 7 um morguninn (ó guð hvað ég vildi að ég hefði verið með þá, en videoin segja sitt)
Buddy Holly, Social, Sams, Heidis, Bridgewater, Broen að sjálfsögðu og hérna til sidst Masken, sem var að koma sterkt inn
Og allt fólkið sem við erum búnar að kynnast.. eða kynnast og ekki kynnast..

Benjamin (THE legend) , köngulóin inná baði, Chanett, skyrtuklæddu flugmennirnir í garðinum hjá Fanney, starfsfólkið í Apotek Löven, Rikke, Henning, Guðrún, Klaus og Simon, leðurgæjar á Buddy, Tune sem vildi bjóða okkur í brunch (vandræðalegt) Kim og félagar á Skovvejen, vores ovenbo Mikkel og Louise, Marta, Formaður Leifur, Hinrik, Skarpi, Martin, Krulla, Tóti, álfurinn, Rúdolf og fleiri góðir vinnufélagar
Sérstakar þakkir fá:
Gæjarnir á Ali Baba, starfsfólk 7/11, læknarnir á læknavaktinni, bakarinn í Fremtidens Bager fyrir að nenna að afgreiða okkur klukkan 4 á nóttunni og íbúar á Skovvejen 40 fyrir að hafa þolað okkur í heilt sumar.
Nóg af þessu væmna kjaftæði, slökkvið á væmna laginu og nú mæli ég með því að þið skellið vinum okkar D-Kay & Epsilon á fóninn, hækkið vel í sometimes I feel like I’m in Barcelona, rífið ykkur úr fötunum, berið á ykkur olíu, blásið upp kútana og síðast en ekki síst blandið ykkur kokteil. Því við erum farnar til Spánar !!

Ég skít bara þar sem ég stend

júlí 22, 2008 af arhus08

Halløj.

Langt síðan ég bloggaði, en það þýðir ekki að það sé frá engu að segja, því að við vinkonurnar erum svo sannarlega búnar að vera í fullu prógrammi síðustu 2vikurnar.

Þarsíðustu helgi komu strákarnir frá Kaupmannahöfn í heimsókn til okkar. Þeir borðuðu matinn okkar, sváfu í rúminu okkar, drukku áfengið okkar, þurrkuðu sér með handklæðunum okkar, kúkuðu í klósettið okkar og það sem mikilvægast er fylltu þeir tómu hjörtu okkar af ólýsanlegri gleði og hamingju með þessari skemmtilegu heimsókn sinni. Á fimmtudeginum fórum við í stúdentsveislu til Christian. Bjarni átti dansgólfið, ég og Birta fundum sundkút (sem vakti mikla gleði), Halla lagði sig úti á götu og Elli stal stærsta bolta í heimi. Á föstudaginn fórum við út að borða á Valhalla, þar sem maður borgar 200kall og má borða og drekka eins mikið og maður getur í 2 tíma. Það þýðir aðeins eitt, og það er skipulag. Einn stútfullur diskur af mat á hálftíma – og þá nær maður fjórum diskum. Þess á milli þambar maður bjórinn. Elli og Bjarni deila titlinum “maður kvöldsins”  en Elli fann uppá besta drykkjuleik í heimi og Bjarni á heiðurinn á að hafa betrekkjað veggi Valhalla með sinni eigin ælu (bjarni.. þú ert maðurinn)
Eftir það fórum við á Sams og sátum öll saman í drykkjuleik og gerðum allt vægast sagt vitlaust. Kristín fær að vera “gella kvöldsins” því gellan kann sko að hrista á sér rassinn (sjá myndband – sem verður sett hingað inn seinna)
Eftir það fórum við á Social þar sem Elli varð svo brjálaður að hann ákvað að blása það fast á kerti að kertavaxið slettist framan í hann allan, það sást ekki framan í greyið manninn fyrir kertavaxi (góður Elli)
Það kvöld enduðum ég, Birta og Búi í skrúðgöngu með heimilislausum krökkum arkandi um götur með ghetto blaster á hausnum og áður en við vissum af vorum við komin í “hús” þeirra heimilislausu í mesta ghetto/hass party sem hefur verið haldið. Segiði svo bara að við séum ekki nett.

Á laugardaginn fórum við á sex and the city (aftur) sem vakti mismikla lukku. Hvað er svona leiðinlegt við það að sitja og horfa á kjóla og töskur í þrjá tíma ?
Djammið var hinsvegar rólegt um kvöldið, en það þýðir bara það að við vorum komnar heim klukkan 4 en ekki 7, og að við munum eftir því.
Búi gerðist frægur og keypti sér líka þennan svakalega rokkarabol (að hann hélt) eða þangað til að við sáum hann og öskruðum öll úr hlátri. En það stoppar ekkert Búa Stein Kárason og hélt maðurinn af stað í bæinn í gulum hlírabol, reyndar var hann í skyrtu yfir en hún fékk að fjúka þegar maðurinn steig á dansgólfið.

Vikan gekk , eins og allar aðrar vikurnar fáránlega hratt., og áður en við vitum af er komin fimmtudagur. Á fimmtudaginn kom Kristín, vinkona hennar Höllu til okkar og þá var farið, eins og alla aðra fimmtudaga á Buddy Holly, rölt aðeins á milli staða og enduðum , eins og alltaf , á uppáhalds staðnum okkar, 7/11 með pulsu í kjaftinum.
Á föstudaginn gerðist ég það fræg og skellti mér í klukkutima strætóferð bara til þess að sjá Birtu standa í Bauhaus í rauða vestinu sínu og segja 197,75 á dönsku (algjörlega þess virði)
um kvöldið fórum við í stúdentsveislu til Dennis, ennþá meira rugl, ennþá meiri bjór.

 

Laugardagurinn var semí sá besti í heimi. Fórum á Grøn Koncert í hellirigningu, en djöfullinn ég hef aldrei skemmt mér jafn vel. Við á tónleikum, í grænum regnjökkum, með bjór í hönd að dilla (eða meira svona MISSA OKKUR) yfir Nik og Jay.
Fórum heim eftir tónleikana og gerðum okkar sætar, fórum i party og svo í bæinn.

Þegar við vöknuðum á sunnudaginn , gjörsamlega búnar á því eftir þriggja daga djamm var ekkert annað í boði en að fara í sturtu og gera sig tilbúnar fyrir enn aðra stúdentsveislu, þar urðu menn mis-ölvaðir, en ég og Halla höfum sýnt það núna og sannað að það er líkamlega og andlega hægt að fara að djamma og síðan beint í vinnuna, það var erfitt, en það tókst. Það besta var að þegar við vorum á röltinu upp í strætó klukkan 6 á mánudagsmorgninum heyrðum við lika þessi hrikalegu öskur og læti frá ströndinni (segjum bara að Birta og Kristín komu heim klukkan 7 með sand uppí rassgatinu)

Í gær var síðasta kvöldið hennar Kristínar , við vorum bunar að fá frí á þriðjudeginum þannig að við settumst við ána og fengum okkur bjór, kíktum svo á Buddy og já, fengum okkar meiri bjór.

Ég kalla mig hetju fyrir að hafa lifað þessa helgi af.

Í morgun var sorgarstund, en hún Kristín okkar Jónsdóttir kvaddi Skovvejen fyrir fullt og allt (þannig er þetta bara, menn þurfa líka að fá sitt djamm á Rhodos) og í dag föttuðum við að þetta er allt saman að verða búið. Ég fæ í magann bara við það að skrifa það hérna. Mjög skrýtið að hugsa til þess að núna sé Kristín bara komin heim, hámandi í sig fisk og banana og vonandi loksins búin að fá sinn skammt af próteinum. Það verður reyndar gott að komast heim í rúmið sitt og maður er farin að sakna mömmu smá, en ég veit að ég á eftir að sakna þess svo mikið að vera hérna með stelpurnar gjörsamlega uppí rassgatinu á mér 24/7.

Við ætlum að fara til Kaupmannahafnar næstu helgi, sem þýðir það að þarnæsta helgi er síðasta helgin okkar hérna því að Halla fer heim 8. En ég og Birta stingum af til Barcelona 9.ágúst. Þar ætlum við að liggja og tana ásamt Stellu og fararstjóranum Eydísi Sigurðar í 10 daga. Það verður geggjað, reyndar er ég alveg komin með ógeð af Birtu, en það er kannski bara af því að hún er ekki búin að fara í sturtu í 8 daga.

Hilse

 

með sólarvörn á djamminu

júlí 4, 2008 af arhus08

Sæler. Ekki mikið að frétta héðan úr svínastíunni á Skovvejen. Bara basic – vinna til fimmtudags, detta í bjórinn fimmtudag, föstudag og laugardag og ef orkan er ekki alveg búin á sunnudögum, þá tökum við til og vöskum upp.

Síðustu helgi kom engin önnur en sjálf djammdrottningin Eydís Sigurðardóttir til Århus og ætluðu fagnaðarlátunum ekki að linna fyrr en pían þurfti síðan að fara heim aftur á sunnudaginn. Henni tókst samt að hitta á góða grenju-helgi en ég kýs nú bara að kenna sjálfri henni um það (nei djók, sorry Eydís) en stundum þarf bara að gráta, það er bara þannig. Það var fána-fest hérna og bættist Hollenski fáninn við inní stofu til okkar. Við fórum að versla bæði föstudag og laugardag, einkennilegt hvað okkur tekst alltaf að versla mikið þrátt fyrir að eiga engan pening. En það var tekið á því Århus-style og já, við fórum á Broen.

Eydís, þú gleymdir trommukjuðunum þínum hérna. Ég ætla aldrei að skila þeim.

Duttum svo óvænt í það á mánudaginn líka, en það var alveg óvart. Eignuðumst nýja vini á Buddy Holly en það er einmitt fastur liður í djamminu hjá okkur.

Í gær var þriggja manna party hérna, en Stína stuð er í Odense. Fórum á Buddy og fengum 6 fría drykki (solid fimmtudagar) eignuðumst ennþá fleiri vini, stofnuðum hljómsveit og dönsuðum fram á nótt. Á leiðinni heim í 7/11 (Birta fer ekki heim án þess að vera með pulsu í kjaftinum) hittum við semí sænska gæja og fórum með þeim á Social club. Þar dönsuðum við svo ennþá meira og endaði kvöldið á ströndinni og vorum við píur komnar heim klukkan 7 í morgun. Besta kvöld hingað til. Semí vandræðalegt að labba göngustíginn illa sjúskaðar á tásunum með hælana í höndinni og bjóðandi fólki á leið í vinnuna go’dag. Veit eiginlega ekki af hverju ég er að skrifa þetta, við erum of sveittar fyrir lífið og pabbi, ef þú ert að lesa, þá.. já, of seint fyrir þig.

Þetta getur hún stelpan

Vöknuðum klukkan 4 í dag og lágum í skóginum að tana til 7, erum búnar að liggja hérna eins og haugar að mana okkur upp í að fara í föt og gera okkur sætar, en uppúr þessu held ég að við séum bara að fara að horfa á góða klámmynd (djók)

Um leið og Stína yfirgefur kotið finnur maður bara skítafýluna aukast með hverri mínútu. Það eina sem er til í ísskápnum eru kjötbollur, pestó og hálfur ananas. En það má nú alveg gera eitthvað gott úr því. Það sést ekki í vaskinn fyrir óhreinu leirtaui og klósettpappírinn er búin. Kristín … komdu heim.

Á morgun erum við að fara í 2 stúdentsveislur, og verður það vonandi good shit djamm, annað er ekki hægt. Svo er mig farið að kitla í magann yfir að strákarnir séu að koma næstu helgi, það verður FEST í lagi !

Birta er (án djóks) farin að steikja kjötbollur , þannig að ég er farin

Sæler

Birna

The summer of 08 – Copenhagen

júní 28, 2008 af arhus08

Okay where to begin? Þetta skemmtilega ferðalag hófst þannig að við vinkonurnar Kristín og Halla tókum af stað til Kaupmannahafnar með rútu en enduðum í ferju! Sem var geggjað.

Búi sæti mætti eldhress á hjóli á lestarstöðina að pikka okkur upp og var haldið heim á leið til strákanna en ástandið þar var verra en hjá Gísla á Uppsölum. Það sem tók svo á móti okkur var Fifa og fullur ískápur af túnfisk og munntóbaki og fengum við einmitt Stelpumunntóbak í gjöf:D ví (tókum það í rassgatið)
Fimmtudagurinn var sem sagt frekar rólegur og haldið sig inni við og mátað vinnudressið hans Ella og farið í Spk en það er náttla alltaf klassík..


Það fyrsta sem var svo gert á föstudeginum var að sjálfsögðu að kúra í tvo tíma en það er fastur liður á hverjum degi hjá bangsafjölskyldunni á Odensegade. Við stelpurnar hoppuðum svo út í Netto til að versla í brunch og kvöldmat fyrir strákana en greyin hafa ekki borðað neitt nema hrökkbrauð og bjór síðan þeir komu og voru búnir að gleyma hvernig djús og ostur bragðast.

Næsti áfangastaður var Kristanía og var sú ferð vægast sagt skrautleg og sá orðheppni datt rækilega í ruglið. Mikið var rætt um ostasósur í strætó, svarta djöfla og hvíta djöfla. Bob the frog kíkti líka á okkur í strætó. Toppfroskur.

Fengum okkur svo pulsu og beint heim að elda..það hljómar ekki alveg nógu vel en jú þannig var það.
Duttum svo rækilega í það yfir Tyrkland Croatia og tókum Fifa í hálfleik. Opnuðum næstum því mjög svo vafasamar umræður um túrtappa og því sem fylgir. (Bara næstum því)

Eftir það lá leiðin á Rust en Rust er einmitt AÐAL staðurinn!!

Á laugardegi númer 3 þá sögðum við stopp nú og ætluðum að vera rólegar um kvöldið en nei þið vitið auðvitað hvernig það endaði… Í ruglinu! Ofcourse

Fórum á íslenskan stað með íslenskri tónlist og hittum fullt af íslendingum sem var mjög gaman. Hittum Dagnýju, Sunnu og einnig Arnar Már og félaga. Áður en við vissum af vorum við svo orðin 10 manns öskrandi um götur bæjarins hin ýmsu lög.

Takk strákar fyrir geggjaða helgi, þið eruð allir frábærirJ And we will be back

Kveðja Halla og Kristín – clubbin 4 life!!

medarbejder i havecenter skal ringe til kasse fire

júní 22, 2008 af arhus08

Þá erum við, aðal-munchararnir búnar að vera einar på Skovvejen um helgina og það var nú meira en að segja það. Þegar stelpurnar héldu af stað (með ferju btw) til Köbenhavn röltu við haugarnir út í búð og keyptum bjór og klósettpappír, basic. Stelpur.. við splæstum í deluxe klósettpappír í þetta skipti. Við komum við á samlokustað á horninu, því að eins og við báðar vissum, þá vorum ekki að fara að elda alla helgina. Um kvöldið sátum við í þriggja manna partyi, en þetta kvöld sló Eydís sitt persónulega met í að tala við okkur á Skype og náði hún 2 tímum, 17 mínútum og 32 sekúndum. Eftir að hafa beðið eftir strákunum í 3 tíma og 2 hvítvínsflöskum seinna ákváðum við að skella okkur bara 2 í bæinn, þar hófst bæjarferð okkar, eins og allar góðar bæjarferðir á Herr Bartels, fengum okkur kokteila og röltum síðan á Buddy Holly. Þar var Happy Hour, eins og alltaf. Við fundum stærstu rör sem við höfum séð og vakti það mikla lukku hjá okkur. Klukkan 3 röltum við síðan á Ali Baba (já, vandræðalegt) og þegar heim kom biðu Simon, Morten og Anders góðvinur okkar fyrir utan og var haldið eftirparty á Skovvejen. Við fórum í leikinn “hver getur klínt mestum augnskugga framan í sig” og klukkan 6 rotuðumst við , ég, simon og morten á vindsænginni og birta og anders uppí litla rúminu okkar. Já.. það sem ekki gerist á Skovvejen krakkar mínir.

Á föstudaginn drukkum við 12 lítra af kóki, fórum út að borða (og nei, við eigum ekki efni á því) og fórum í bíó. Það var ágætis afþreying.

Á laugardagsmorguninn hentumst við í bæinn, keyptum stúdentsgjöf fyrir Mariu og meiri bjór. Um kvöldið fórum við í mjög svo vandræðalega stúdentsveislu, þar sem við þekktum engan. En það reddaðist úr því, og eigum við nú fullt af dönskum vinkonum. Veislan var haldin uppí sveit og hefðum við kannski aðeins hugsað okkur um áður en við tókum leigubíl þangað, en við eyddum 10.000 kalli í leigubíl í gær. Mazel tov fyrir þvi.

Ég er búin að finna mér nýtt legend og það er engin annar en Thomas Buttenschøn, en ég fjárfesti í nýju plötunni hans í gær og hvet ég alla til að tjékka á honum. Birta var ekki að fíla hann.

Í morgun vöknuðum við um 12 leytið, óvenju sjúskaðar, drukknaðar í okkar eigin skít og fannst okkur sem eitthvað væri að mygla undir rúminu. Þá sögðum við HINGAÐ OG EKKI LENGRA og var sem Pálmar vinur minn Viggóson væri mættur, því ekki einungis var ryksugað og skúrað heldur voru líka búnar til möppuskúffur, tækjaskúffur, snúruskúffur og lyfjapoki (sem er aðallega fyrir Kristínu, sem er þó búin að vera minnst veik af okkur , en alltaf þarf maður að hafa varann á)
Og skíturinn var ekkert lítill, og eins og áður hefur komið fram þá var íbúðin ógeðsleg þegar við mættum hingað fyrir mánuði og því spurjum við okkur hvernig slík þjóðarhetja eins og hann Benjamin er í okkar augum geti lifað slíku saurlífi hérna í þessari íbúð. En við semsagt fengum nóg og er íbúðin sem ný. Stelpur, þið vaskið upp næsta mánuðinn.

Eftir þessa miklu hreingerningarsprautu stukkum við út í Brugsen og keyptum í matinn (engan bjór í þetta skiptið) og elduðum!! Sem er algjört kraftaverk út af fyrir sig , ef hafa má til hliðsjónar átök helgarinnar.

Má til með að skella einu hérna inn líka, sem er, og verður hápunktur helgarinnar sama hvað ykkur finnst. Og læt ég þessa mynd fylgja með.

Ég er farin út að skokka

/Birna

Højere, vildere, højere, vildere…

júní 17, 2008 af arhus08

Hæ hó jibbí jei og jibbbí jei, það er kominn 17 júní… Já og fokking só

Ég elska danmörk.
Á Íslandi segir maður, æj ég ætla að skella mér í bíó í kvöld
Í Danmörku segir maður, skellti mér í bíó og endaði svo á mest spontant og hellaðasta djammi ever ! Hahah það er nú saga fyrir sig sem inniheldur súkkulaði snigla, endalausa cultshaker, mange dörredanse og last but not least Steraköggler selvfölgelige!  Haha Go team go

Lífið

Á fimmtudaginn munu ég og Kristín fara á vit ævintýranna. Ekki bara niðrí bæ heldur alla leið til Köben! Yes, you heard me
Gistum hjá Búa, Ella og Danna.
Ekkert planað nema að fara í einhverja bryggverksmiðju sem Kristín hættir ekki að tala um en ferðin mun örugglega byrja a pungnum á Búa og enda á rassinum á Búa.
Haha þetta verður eitthvað sérstakt.

(Héðan í frá verður svo alltaf gossip girl “spotted” dálkur, allavega í boði höllu sveins)
Spotted:
Miss Kitty og Steraköggull bahahha djók
J
elska þig mest
Birna og Simon på Gas station ( Højere, vildere..)
Birta og Christian in the Szhaszha

Og af mér… that’s a secret i’ll never tell you
Until next time, you know you love me

XoXo Gossip

Just keep’em coming

júní 14, 2008 af arhus08

Það er búið að taka mig viku að mana mig upp í að byrja á þessu bloggi, bæði vegna þess að ég er gjörsamlega ekkert búin að sofa í heila viku og þegar fimmtudagarnar ganga í garð fær maður sér bjór og sá hættir ekki að renna niður fyrr en á sunnudagsmorgnum. Vikan er búin að vera frekar erfið fyrir okkur stöllur , mig og Höllu því að á mánudaginn vöknuðum við klukkan 5 til þess að mæta í vinnuna klukkan 7. Við tókum strætó lengst upp í sveit, fórum út á vitlausum stað og löbbuðum uþb 8 km þangað til við komumst loksins á leiðarenda þeas Coop Ferskvarelager i Hasselager (45min of seinar) Þegar við komum inn vissum við ekki hvað snéri upp né niður og biðum eftir vin okkar Henning Andersen sem síðan lét loksins sjá sig með 2 mjög svo vafasamar konur í eftirdragi. Þessar konur áttu síðan eftir að fylgja okkur næstu 3 dagana, ein trukkalessa fyrir mig og ein trukkalessa fyrir Höllu. Nú, þessar konur fóru með okkur inn á lager þar sem við áttum að finna okkur vinnuföt og svokallaðan öryggisskóbúnað. En í stuttu máli þá áttum við semsagt að fara í hitabuxur innan undir snjóbuxur, hitapeysu innanundir jakka og svo úlpu yfir og þið getið rétt svo ímyndað ykkur mig í úlpu í XL (og þar sem það vinna svona 99,7% karlmenn þarna þá sást varla í mig þegar ég var komin í þessi föt) Þarna stóðum við , inni í búningsklefanum og vissum ekki hvort við áttum að bresta í grát eða hreinlega öskra úr hlátri. Ég kaus að hlæja, og er búin að hlæja núna í heila viku. En eins og kannski flestir vita þá höfðum við ekki hugmynd um hverskonar vinnu við vorum búnar að ráða okkur í, en þar sem við vorum komnar í þessi föt var okkur farið að gruna að um einhverskonar kulda-vinnu væri að ræða.
Við okkur blasti síðan líka þessi rosalega stóri ísskápur þar sem fólk þeyttist um og var að pakka vörum. Þegar mín kona labbaði með mér og sýndi mér lyftarann minn langaði mig að hlaupa út. En þarna vorum við semsagt staddar á lager í 5stiga frosti þar sem við eigum að þeytast um á lyfturum og pakka vörum sem verða síðan sendar í búðir. Þetta er án efa með því fyndnara sem hefur gerst í lífinu frá upphafi og erum við búnar að hlæja endalaust af þessu í heila viku. En Þetta er farið að vera einstök skemmtun og erum ég og Halla að fíla okkur í botn inni á kaffistofunni umkringdar gömlum, feitum dönskum köllum í kraftgöllum. Eitt er víst, að ég á eftir að hlæja af þessu þangað til ég dey.
Svo er minnst að gera á föstudögum í vinnunni og ekkert mál að fá frí, og er alveg á hreinu að við eigum óspart eftir að notfæra okkur það. En við fengum einmitt frí í gær til þess að taka djammið í gegn á fimmtudaginn. Fóru út á lífið með kumpánum okkar Christian, Simon og félögum.
Á föstudagsmorguninn hittumst ég og Birta svo í bænum og vorum búnar að versla okkur kjól og fara í brunch fyrir hádegi. Það fannst okkur líka mjög fyndið.
Í gær dressuðum við okkur upp í kjóla og fórum á Sex and the city. Halla hló, ég pissaði í mig og Birta og Kristín grenjuðu, en það var gaman. Eftir það héldum við á Herr Bartels og skelltum í okkur nokkrum Cosmopolitans, ég og Birta fórum síðan heim, enda þreyttar eftir átök gærkvöldsins. En að fara heim að sofa var ekki í boði fyrir djammdýrin Hally and Kitty, þær tóku djammið í gegn og þegar Birta var að fara í vinnuna í morgun skröltu þær stöllur inn með súkkulaðisnigla frá Fremtidens Bager í annari og cult shakerinn í hinni, búnar semsagt að djamma stanslaust í uþb 20 tíma. Sjálf náði ég 14 tíma svefn.
Í kvöld verður virkilega tekið á því, búnar að fylla ísskápinn af cult shaker.. getur ekki klikkað.
Birna

Hetja Reynisson

júní 8, 2008 af arhus08


Erling Reynisson hetja

Ég vil nota tækifærið og hrósa Ella fyrir vel unnin störf seinustu helgi, algjör hetja!

Marta skellti sér í helgarferð til Köben og náði mynd af Ella vera að bjarga hórunum þeirra Búa og Danna.

Vil einnig benda á quote frá Ella:
“Maður skyldi ætla að það væri nóg að læra skriðsund og björgunarsund til að lifa af hættulegar aðstæður en nei…það er verið að troða í pakkann einhverju skólabaksundi, flugsundi og kafsundi sem engu máli skiptir og er bara til að flækja málin. “


Kallinn mættur i kafarbúninginn, og chicks – til í allt.. hehehe


Strákarnir illa sáttir…hehehe

Það er stundum gott að kunna kafsund, Erling sannaði það svo sannarlega.
Halda þessu áfram strákar

the lovebox is empty

júní 8, 2008 af arhus08

Ég er í sjokki. Það sést ekki í gólfið á íbúðinni okkar fyrir pizzakössum og bjórdósum, það er engu líkara en 4 svín eigi heima hérna. Ég sit hérna og veit ekki hvort að lyktin sem ég finn kemur af tánum mínum eða undir handakrikanum á Birtu, ég hef ekki tölu á dögunum síðan ég fór síðast í sturtu og eitt er víst – við þurfum að taka til.

En á morgun er þessu saurlífi á enda. Skiltin í Bauhaus þýða sig ekkert sjálf yfir á íslensku og ég og Halla byrjum að vinna klukkan 7. Þá taka við 8 tíma vinnudagar. Það er að segja þangað til við dettum í djammið næstu helgi. Erum reyndar búnar að lofa að gå i byen á fimmtudaginn því að Christian á afmæli og ætlum við svo sannarlega að detta í ölið þá

Síðustu dagar eru búnir að vera unaðslegir på Skovvejen. Ég fór um daginn og pantaði eina stóra pizzu fyrir okkur 4 og þegar ég fékk pizzuna í hendurnar kom nú í ljós að danir hafa greinilega ekki fengið sér pizzuna í Garðabæ og vissu greinilega ekki að Birta væri með í för, því að meðalmuncharar eins og Kristín hefðu getað tekið pizzuna í einum munnbita.
Nú, það er nú ekki frásögu færandi nema að þegar við ætluðum að fá okkur pizzu aftur í gær stekkur Halla Sveins beinustu leið og pantar hvorki meira né minna en 2 stórar pizzur og til að gera mjög svo skemmtilega og langa sögu stutta þá hafði ég pantað vitlaust um daginn og í ofninum blasti við Höllu 2 stærstu pizzur sem hafa verið bakaðar í öllum Árósum. Og til að gera þessa sögu ennþá styttri, því hún er farin að vera frekar leiðinleg. Þá roguðumst við heim með 2 pizzakassa, sem án djóks voru stærri en ég sjálf. Og ísskápurinn okkar er stútfullur af pizzu sem munu endast örugglega alveg þangað til á morgun, ef Kristín hættir að éta þeas.

Svo er Miss Eindhoven queen búin að vera dugleg við að djamma með okkur. En hún skellti sér út í búð um daginn og keypti sér kassa af bjór, hatt (sem er líka tromma) og var svo sannarlega hressasta manneskjan á svæðinu. Og læt ég þessa mynd fylgja.

Í gær lágum ég og Birta í garðinum hérna við hliðiná okkur í marga tíma og létum kalda bjórinn renna niður á meðan við tönuðum. En það að við værum orðnar vel hífaðar um 6 leytið stoppaði okkur sko aldeilis ekki , við stauluðumst heim og með miklu erfiðleikum náðum við að skipta um föt og gera okkur sætar, það fer engin óstrípaður á djammið í Århus. Við dönsuðum við ljúfa tóna Nik og Jay á Sams-bar langt fram á nótt, en klukkan 3 röltum við svo þangað sem öll góð djömm enda, til félaga okkar á AliBaba og fengum okkur sveittustu pizzu í heimi með dressingu (já, nei ég er ekki að djóka)

Gaman að segja frá því að innflutningsgjöfina okkar frá Fanney er tæknilega séð búin, en þeir sem vita hvað við fengum geta tekið þetta til sín. Alltaf nóg pláss í íbúðinni, því að við höfum verið duglegar við að sofa ekki heima hjá okkur og eru að meðaltali bara 3 manneskjur heima hjá okkur á næturna.

Núna liggjum við , ég og Birta í skóginum að tana. Kristín og Halla eru farnar heim, Halla þolir ekki sól og Kristin var orðin svöng greyið, enda bara búin að borða pizzu, 3 kanilsnúða og 2 súkkulaðisnigla í morgun. Og hér munum við liggja þangað til við gjörsamlega deyjum úr hita og snúum hjem på Skovvejen að taka til!!!!

Lifi munchið
Birna

eyyy

júní 6, 2008 af arhus08

Jess, við föttuðum finally hvernig á að setja myndir on the website, check iiiit

Já og eitt enn,
Von er á íslensku strákunum okkar til Århus með næstu lest, Búi getur ekki beðið með að komast í það græna, en hann hatar það ekki frekar en blautar og þröngar pjöllur.
Hlökkum til að sjá ykkur og Búi láttu þér batna,

passa sig á grillinu, hehehe