Hva så !

By arhus08

Það er ekkert annað, eftir næstum árs bið þá get ég loksins sagt að við erum komnar! Tár voru felld í Leifstöð, en þó aðallega tár Eydísar Eindhoven-meistara sem mynduðu læk til Keflavíkur, en við DK piger létum það ekki stöðva okkur og héldum af stað í þetta mikla ferðalag, þó án Eydísar, en það er önnur saga. Fengum smá forsmekk á dönskunni uppá velli, sem ég var búin að bíða eftir í marga mánuði, Stella elti okkur með cameruna, Birta keypti sér Tímó, Stella tjáði hversu mikið henni fyndist gubb fyndið og þegar lítil stelpa fyrir aftan okkur í vélinni þurfti að æla ætlaði Stella ekki að hætta að öskra úr hlátri, ég og Birta fögnuðum HEYA NORGE við lítlum fagnaðarlátum flugfreyjanna, enda voru þær einnig í beinni í camerunni hennar Stellu. 

Þetta er náttúrulega engan vegin fyndið, en þegar við komum heim kemur út heimildarmynd um þessa ferð, sem Stella ætlar að klippa í sumar. enda hefur hún ekkert annað að gera. 

Þegar við vorum búnar gjörsamlega að æla úr hlátri á Burger King í Köbenhavn og fæla flest alla viðskiptavini í burtu hófst lestarferðin mikla, sem tók um 5 tíma – en það var allt í lagi, því Stella var með nesti. og þá er ég að tala um flatkökur með hangikjöti, banana, lífræna sveskjuköku og abt mjólk. Birta fékk síðan afmælisgjöfina sína í lestinni – en það var fjórar séríur af hinum geysivinsælu þáttum Legend of Rin Tin Tin.

Eftir að hafa hlegið okkur máttlausar á þessum 3 tímum sem við höfðum verið í Danmörku stigum við út på Banegårdspladsen og þá var það official – The Icelandic chicks were back in town (okei, kjánalegt) 

Við fundum loksins íbúðina okkar og áður en ég náði að sækja lykilinn og opna hurðina, tókst Birtu að rota saklausan hjólreiðamann sem átti leið hjá. 

Þegar inn var haldið hófust fagnaðarlætin og þeim ætlaði ekki að linna fyrr en við komum auga á klósettið úti á gangi. Hún Margrét vinkona mín, danadrottning hefði aldrei skellt sér á þessa setu og segjum bara að Birta ætli að halda í sér í 3 mánuði. 

Við skelltum okkur á Pizza Hut, sveittar sem aldrei fyrr. (Dísa, þú þekkir þetta) Halla fór heim til Fanneyjar, Stella til Péturs og við, Birna, Birta og Kristín héldum heim á leið með tvöfalda vindsæng á bakinu, bjórinn í hægri og loftpumpuna í vinstri. 

En við 3 erum þá allaveganna búnar að koma okkur ágætlega fyrir, Birta og Kristín eru sofnaðar – menn þurfa að mæta í vinnu snemma í fyrramálið, þeir byrja nefninlega snemma þarna í Bauhaus. En ég, já ég ætla bara að fá mér annan bjór og ef til vill skella honum Rin vini mínum í tækið.

Dagurinn á morgun hljómar svo eitthvað í þessa áttina – koma okkur fyrir, cult shaker, kíkja í H&M, cult shaker, Heiða ætlar að koma í heimsókn, cult shaker, stelpudinner, cult shaker, hitta strákana, cult shaker. 

Þetta átti nú bara að vera stutt og laggott, enda bara búin að vera í danmörku í u.þ.b 8 klukkustundir, en við vitum líka að þú bíður spennt Eydís, og við bíðum líka spenntar eftir síðustu helginni í júní, eða var það fyrsta helgin í júlí ? DJÖFULL ER ÉG SPENNT !! 

2 svör to “Hva så !”

  1. eydis89 segir:

    ég sakna ykkar endalaust mikið og ég væri svoooo til í að vera hjá ykkur í hláturskasti alla daga í allt sumar :) en svona er þetta….ég kem 26 júní!!! be ready! ég vil fá fánamóttökur á lestarstöðinni þegar ég kem =P og einn cultshaker! nenniði að blogga aftur í dag eða allavega hringja í mig á skype :) love and respect and some Bootylovin….Eydís :*

  2. Búi Steinn segir:

    Sælar stúlkur

    Flott hjá ykkur, skemmtið ykkur vel í sumar og ég get ekki beðið eftir að hitta ykkur úti.

    Skál

Skildu eftir svar