the lovebox is empty

By arhus08

Ég er í sjokki. Það sést ekki í gólfið á íbúðinni okkar fyrir pizzakössum og bjórdósum, það er engu líkara en 4 svín eigi heima hérna. Ég sit hérna og veit ekki hvort að lyktin sem ég finn kemur af tánum mínum eða undir handakrikanum á Birtu, ég hef ekki tölu á dögunum síðan ég fór síðast í sturtu og eitt er víst – við þurfum að taka til.

En á morgun er þessu saurlífi á enda. Skiltin í Bauhaus þýða sig ekkert sjálf yfir á íslensku og ég og Halla byrjum að vinna klukkan 7. Þá taka við 8 tíma vinnudagar. Það er að segja þangað til við dettum í djammið næstu helgi. Erum reyndar búnar að lofa að gå i byen á fimmtudaginn því að Christian á afmæli og ætlum við svo sannarlega að detta í ölið þá

Síðustu dagar eru búnir að vera unaðslegir på Skovvejen. Ég fór um daginn og pantaði eina stóra pizzu fyrir okkur 4 og þegar ég fékk pizzuna í hendurnar kom nú í ljós að danir hafa greinilega ekki fengið sér pizzuna í Garðabæ og vissu greinilega ekki að Birta væri með í för, því að meðalmuncharar eins og Kristín hefðu getað tekið pizzuna í einum munnbita.
Nú, það er nú ekki frásögu færandi nema að þegar við ætluðum að fá okkur pizzu aftur í gær stekkur Halla Sveins beinustu leið og pantar hvorki meira né minna en 2 stórar pizzur og til að gera mjög svo skemmtilega og langa sögu stutta þá hafði ég pantað vitlaust um daginn og í ofninum blasti við Höllu 2 stærstu pizzur sem hafa verið bakaðar í öllum Árósum. Og til að gera þessa sögu ennþá styttri, því hún er farin að vera frekar leiðinleg. Þá roguðumst við heim með 2 pizzakassa, sem án djóks voru stærri en ég sjálf. Og ísskápurinn okkar er stútfullur af pizzu sem munu endast örugglega alveg þangað til á morgun, ef Kristín hættir að éta þeas.

Svo er Miss Eindhoven queen búin að vera dugleg við að djamma með okkur. En hún skellti sér út í búð um daginn og keypti sér kassa af bjór, hatt (sem er líka tromma) og var svo sannarlega hressasta manneskjan á svæðinu. Og læt ég þessa mynd fylgja.

Í gær lágum ég og Birta í garðinum hérna við hliðiná okkur í marga tíma og létum kalda bjórinn renna niður á meðan við tönuðum. En það að við værum orðnar vel hífaðar um 6 leytið stoppaði okkur sko aldeilis ekki , við stauluðumst heim og með miklu erfiðleikum náðum við að skipta um föt og gera okkur sætar, það fer engin óstrípaður á djammið í Århus. Við dönsuðum við ljúfa tóna Nik og Jay á Sams-bar langt fram á nótt, en klukkan 3 röltum við svo þangað sem öll góð djömm enda, til félaga okkar á AliBaba og fengum okkur sveittustu pizzu í heimi með dressingu (já, nei ég er ekki að djóka)

Gaman að segja frá því að innflutningsgjöfina okkar frá Fanney er tæknilega séð búin, en þeir sem vita hvað við fengum geta tekið þetta til sín. Alltaf nóg pláss í íbúðinni, því að við höfum verið duglegar við að sofa ekki heima hjá okkur og eru að meðaltali bara 3 manneskjur heima hjá okkur á næturna.

Núna liggjum við , ég og Birta í skóginum að tana. Kristín og Halla eru farnar heim, Halla þolir ekki sól og Kristin var orðin svöng greyið, enda bara búin að borða pizzu, 3 kanilsnúða og 2 súkkulaðisnigla í morgun. Og hér munum við liggja þangað til við gjörsamlega deyjum úr hita og snúum hjem på Skovvejen að taka til!!!!

Lifi munchið
Birna

2 svör to “the lovebox is empty”

  1. Búi Steinn segir:

    Djöfull getið þið borðað.
    Við strákarnir borðum tvisvar á dag; Kellogs á morgnana og hrökkbrauð með lifrakæfu á kvöldin.
    Við höfum bara hreinlega ekki efni á að borða meira.
    Þið dömurnar splæsið kannski pizzu þegar við mætum og í þá heimsókn fer að styttast skal ég segja ykkur.

    Megið þið lengi lifa.

  2. Stella segir:

    jahá þið segið fréttir … love boxið búið bara :O
    hlakka til að knúsa spikið á ykkur þegar þið komið heim!

Skildu eftir svar