medarbejder i havecenter skal ringe til kasse fire

By arhus08

Þá erum við, aðal-munchararnir búnar að vera einar på Skovvejen um helgina og það var nú meira en að segja það. Þegar stelpurnar héldu af stað (með ferju btw) til Köbenhavn röltu við haugarnir út í búð og keyptum bjór og klósettpappír, basic. Stelpur.. við splæstum í deluxe klósettpappír í þetta skipti. Við komum við á samlokustað á horninu, því að eins og við báðar vissum, þá vorum ekki að fara að elda alla helgina. Um kvöldið sátum við í þriggja manna partyi, en þetta kvöld sló Eydís sitt persónulega met í að tala við okkur á Skype og náði hún 2 tímum, 17 mínútum og 32 sekúndum. Eftir að hafa beðið eftir strákunum í 3 tíma og 2 hvítvínsflöskum seinna ákváðum við að skella okkur bara 2 í bæinn, þar hófst bæjarferð okkar, eins og allar góðar bæjarferðir á Herr Bartels, fengum okkur kokteila og röltum síðan á Buddy Holly. Þar var Happy Hour, eins og alltaf. Við fundum stærstu rör sem við höfum séð og vakti það mikla lukku hjá okkur. Klukkan 3 röltum við síðan á Ali Baba (já, vandræðalegt) og þegar heim kom biðu Simon, Morten og Anders góðvinur okkar fyrir utan og var haldið eftirparty á Skovvejen. Við fórum í leikinn “hver getur klínt mestum augnskugga framan í sig” og klukkan 6 rotuðumst við , ég, simon og morten á vindsænginni og birta og anders uppí litla rúminu okkar. Já.. það sem ekki gerist á Skovvejen krakkar mínir.

Á föstudaginn drukkum við 12 lítra af kóki, fórum út að borða (og nei, við eigum ekki efni á því) og fórum í bíó. Það var ágætis afþreying.

Á laugardagsmorguninn hentumst við í bæinn, keyptum stúdentsgjöf fyrir Mariu og meiri bjór. Um kvöldið fórum við í mjög svo vandræðalega stúdentsveislu, þar sem við þekktum engan. En það reddaðist úr því, og eigum við nú fullt af dönskum vinkonum. Veislan var haldin uppí sveit og hefðum við kannski aðeins hugsað okkur um áður en við tókum leigubíl þangað, en við eyddum 10.000 kalli í leigubíl í gær. Mazel tov fyrir þvi.

Ég er búin að finna mér nýtt legend og það er engin annar en Thomas Buttenschøn, en ég fjárfesti í nýju plötunni hans í gær og hvet ég alla til að tjékka á honum. Birta var ekki að fíla hann.

Í morgun vöknuðum við um 12 leytið, óvenju sjúskaðar, drukknaðar í okkar eigin skít og fannst okkur sem eitthvað væri að mygla undir rúminu. Þá sögðum við HINGAÐ OG EKKI LENGRA og var sem Pálmar vinur minn Viggóson væri mættur, því ekki einungis var ryksugað og skúrað heldur voru líka búnar til möppuskúffur, tækjaskúffur, snúruskúffur og lyfjapoki (sem er aðallega fyrir Kristínu, sem er þó búin að vera minnst veik af okkur , en alltaf þarf maður að hafa varann á)
Og skíturinn var ekkert lítill, og eins og áður hefur komið fram þá var íbúðin ógeðsleg þegar við mættum hingað fyrir mánuði og því spurjum við okkur hvernig slík þjóðarhetja eins og hann Benjamin er í okkar augum geti lifað slíku saurlífi hérna í þessari íbúð. En við semsagt fengum nóg og er íbúðin sem ný. Stelpur, þið vaskið upp næsta mánuðinn.

Eftir þessa miklu hreingerningarsprautu stukkum við út í Brugsen og keyptum í matinn (engan bjór í þetta skiptið) og elduðum!! Sem er algjört kraftaverk út af fyrir sig , ef hafa má til hliðsjónar átök helgarinnar.

Má til með að skella einu hérna inn líka, sem er, og verður hápunktur helgarinnar sama hvað ykkur finnst. Og læt ég þessa mynd fylgja með.

Ég er farin út að skokka

/Birna

2 svör to “medarbejder i havecenter skal ringe til kasse fire”

  1. Birta segir:

    þessi maður er hápúnktur lífs míns.

  2. Eydis segir:

    Bara ad minna a ad eg kem eftir 1 og halfan dag :D 26 JUNI !!! Eg er svo massa spennt ad sja ykkur!

Skildu eftir svar