Okay where to begin? Þetta skemmtilega ferðalag hófst þannig að við vinkonurnar Kristín og Halla tókum af stað til Kaupmannahafnar með rútu en enduðum í ferju! Sem var geggjað.

Búi sæti mætti eldhress á hjóli á lestarstöðina að pikka okkur upp og var haldið heim á leið til strákanna en ástandið þar var verra en hjá Gísla á Uppsölum. Það sem tók svo á móti okkur var Fifa og fullur ískápur af túnfisk og munntóbaki og fengum við einmitt Stelpumunntóbak í gjöf:D ví (tókum það í rassgatið)
Fimmtudagurinn var sem sagt frekar rólegur og haldið sig inni við og mátað vinnudressið hans Ella og farið í Spk en það er náttla alltaf klassík..

Það fyrsta sem var svo gert á föstudeginum var að sjálfsögðu að kúra í tvo tíma en það er fastur liður á hverjum degi hjá bangsafjölskyldunni á Odensegade. Við stelpurnar hoppuðum svo út í Netto til að versla í brunch og kvöldmat fyrir strákana en greyin hafa ekki borðað neitt nema hrökkbrauð og bjór síðan þeir komu og voru búnir að gleyma hvernig djús og ostur bragðast.
Næsti áfangastaður var Kristanía og var sú ferð vægast sagt skrautleg og sá orðheppni datt rækilega í ruglið. Mikið var rætt um ostasósur í strætó, svarta djöfla og hvíta djöfla. Bob the frog kíkti líka á okkur í strætó. Toppfroskur.

Fengum okkur svo pulsu og beint heim að elda..það hljómar ekki alveg nógu vel en jú þannig var það.
Duttum svo rækilega í það yfir Tyrkland Croatia og tókum Fifa í hálfleik. Opnuðum næstum því mjög svo vafasamar umræður um túrtappa og því sem fylgir. (Bara næstum því)

Eftir það lá leiðin á Rust en Rust er einmitt AÐAL staðurinn!!
Á laugardegi númer 3 þá sögðum við stopp nú og ætluðum að vera rólegar um kvöldið en nei þið vitið auðvitað hvernig það endaði… Í ruglinu! Ofcourse
Fórum á íslenskan stað með íslenskri tónlist og hittum fullt af íslendingum sem var mjög gaman. Hittum Dagnýju, Sunnu og einnig Arnar Már og félaga. Áður en við vissum af vorum við svo orðin 10 manns öskrandi um götur bæjarins hin ýmsu lög.

Takk strákar fyrir geggjaða helgi, þið eruð allir frábærirJ And we will be back


Kveðja Halla og Kristín – clubbin 4 life!!
júní 28, 2008 klukkan 9:40 pm
Takk sömuleiðis steplur fyrir matinn og frábæra helgi. Þetta var insane geðveiki og allt sem því fylgir.