Sæler. Ekki mikið að frétta héðan úr svínastíunni á Skovvejen. Bara basic – vinna til fimmtudags, detta í bjórinn fimmtudag, föstudag og laugardag og ef orkan er ekki alveg búin á sunnudögum, þá tökum við til og vöskum upp.

Síðustu helgi kom engin önnur en sjálf djammdrottningin Eydís Sigurðardóttir til Århus og ætluðu fagnaðarlátunum ekki að linna fyrr en pían þurfti síðan að fara heim aftur á sunnudaginn. Henni tókst samt að hitta á góða grenju-helgi en ég kýs nú bara að kenna sjálfri henni um það (nei djók, sorry Eydís) en stundum þarf bara að gráta, það er bara þannig. Það var fána-fest hérna og bættist Hollenski fáninn við inní stofu til okkar. Við fórum að versla bæði föstudag og laugardag, einkennilegt hvað okkur tekst alltaf að versla mikið þrátt fyrir að eiga engan pening. En það var tekið á því Århus-style og já, við fórum á Broen.

Eydís, þú gleymdir trommukjuðunum þínum hérna. Ég ætla aldrei að skila þeim.
Duttum svo óvænt í það á mánudaginn líka, en það var alveg óvart. Eignuðumst nýja vini á Buddy Holly en það er einmitt fastur liður í djamminu hjá okkur.

Í gær var þriggja manna party hérna, en Stína stuð er í Odense. Fórum á Buddy og fengum 6 fría drykki (solid fimmtudagar) eignuðumst ennþá fleiri vini, stofnuðum hljómsveit og dönsuðum fram á nótt. Á leiðinni heim í 7/11 (Birta fer ekki heim án þess að vera með pulsu í kjaftinum) hittum við semí sænska gæja og fórum með þeim á Social club. Þar dönsuðum við svo ennþá meira og endaði kvöldið á ströndinni og vorum við píur komnar heim klukkan 7 í morgun. Besta kvöld hingað til. Semí vandræðalegt að labba göngustíginn illa sjúskaðar á tásunum með hælana í höndinni og bjóðandi fólki á leið í vinnuna go’dag. Veit eiginlega ekki af hverju ég er að skrifa þetta, við erum of sveittar fyrir lífið og pabbi, ef þú ert að lesa, þá.. já, of seint fyrir þig.


Þetta getur hún stelpan



Vöknuðum klukkan 4 í dag og lágum í skóginum að tana til 7, erum búnar að liggja hérna eins og haugar að mana okkur upp í að fara í föt og gera okkur sætar, en uppúr þessu held ég að við séum bara að fara að horfa á góða klámmynd (djók)
Um leið og Stína yfirgefur kotið finnur maður bara skítafýluna aukast með hverri mínútu. Það eina sem er til í ísskápnum eru kjötbollur, pestó og hálfur ananas. En það má nú alveg gera eitthvað gott úr því. Það sést ekki í vaskinn fyrir óhreinu leirtaui og klósettpappírinn er búin. Kristín … komdu heim.
Á morgun erum við að fara í 2 stúdentsveislur, og verður það vonandi good shit djamm, annað er ekki hægt. Svo er mig farið að kitla í magann yfir að strákarnir séu að koma næstu helgi, það verður FEST í lagi !
Birta er (án djóks) farin að steikja kjötbollur , þannig að ég er farin
Sæler
Birna

júlí 8, 2008 klukkan 4:32 pm
Stelpur…
ég trúi ekki að þið hafið ekki borðað ananasinn! ég sagði ykkur að borða ávextina ykkar….
en allavega þá kem ég heim á morgun þannig þið þurfið ekki að örvænta lengur
og þá verður sko FEST! ég og bjarni kippum með okkur nokkrum romm og vodka flöskum og byrjum helgina bara snemma, eða fyrr en venjulega…á miðvikudegi! Ég er búin að læra að gera fullt af kokteilum hérna í Óðinsvé þannig ykkur ætti að byrja að hlakka til…
See you tomorrow honnys!
júlí 9, 2008 klukkan 11:24 pm
Hæ litla frænka. Mér fynnst ráðlagt að benda þér á að láta ömmu þína ekki lesa þetta blogg.
Annars, takk fyrir afmæliskveðjurnar. Þetta var langur og skemmtilegur afmælisdagur.
Hvernig gengur annars í kraft-gallanum og ávöxtunum. Ég sé þig ekki alveg fyrir mér að vinna á lyftara. Nærðu niður á pedalana…………. ha ha sma djók.
júlí 10, 2008 klukkan 6:06 pm
hey beibs
bara gaman gaman! :d
nenniði að hringja eða allavega ´láta mig vita þegar þið eruð við skjáinn svo ég geti þá allavega hringt.. það eru nebblega ekki fá atvikin sem hafa liðið um dagana hér á klakanum… heee
smúts :*