Halløj.
Langt síðan ég bloggaði, en það þýðir ekki að það sé frá engu að segja, því að við vinkonurnar erum svo sannarlega búnar að vera í fullu prógrammi síðustu 2vikurnar.
Þarsíðustu helgi komu strákarnir frá Kaupmannahöfn í heimsókn til okkar. Þeir borðuðu matinn okkar, sváfu í rúminu okkar, drukku áfengið okkar, þurrkuðu sér með handklæðunum okkar, kúkuðu í klósettið okkar og það sem mikilvægast er fylltu þeir tómu hjörtu okkar af ólýsanlegri gleði og hamingju með þessari skemmtilegu heimsókn sinni. Á fimmtudeginum fórum við í stúdentsveislu til Christian. Bjarni átti dansgólfið, ég og Birta fundum sundkút (sem vakti mikla gleði), Halla lagði sig úti á götu og Elli stal stærsta bolta í heimi. Á föstudaginn fórum við út að borða á Valhalla, þar sem maður borgar 200kall og má borða og drekka eins mikið og maður getur í 2 tíma. Það þýðir aðeins eitt, og það er skipulag. Einn stútfullur diskur af mat á hálftíma – og þá nær maður fjórum diskum. Þess á milli þambar maður bjórinn. Elli og Bjarni deila titlinum “maður kvöldsins” en Elli fann uppá besta drykkjuleik í heimi og Bjarni á heiðurinn á að hafa betrekkjað veggi Valhalla með sinni eigin ælu (bjarni.. þú ert maðurinn)
Eftir það fórum við á Sams og sátum öll saman í drykkjuleik og gerðum allt vægast sagt vitlaust. Kristín fær að vera “gella kvöldsins” því gellan kann sko að hrista á sér rassinn (sjá myndband – sem verður sett hingað inn seinna)
Eftir það fórum við á Social þar sem Elli varð svo brjálaður að hann ákvað að blása það fast á kerti að kertavaxið slettist framan í hann allan, það sást ekki framan í greyið manninn fyrir kertavaxi (góður Elli)
Það kvöld enduðum ég, Birta og Búi í skrúðgöngu með heimilislausum krökkum arkandi um götur með ghetto blaster á hausnum og áður en við vissum af vorum við komin í “hús” þeirra heimilislausu í mesta ghetto/hass party sem hefur verið haldið. Segiði svo bara að við séum ekki nett.
Á laugardaginn fórum við á sex and the city (aftur) sem vakti mismikla lukku. Hvað er svona leiðinlegt við það að sitja og horfa á kjóla og töskur í þrjá tíma ?
Djammið var hinsvegar rólegt um kvöldið, en það þýðir bara það að við vorum komnar heim klukkan 4 en ekki 7, og að við munum eftir því.
Búi gerðist frægur og keypti sér líka þennan svakalega rokkarabol (að hann hélt) eða þangað til að við sáum hann og öskruðum öll úr hlátri. En það stoppar ekkert Búa Stein Kárason og hélt maðurinn af stað í bæinn í gulum hlírabol, reyndar var hann í skyrtu yfir en hún fékk að fjúka þegar maðurinn steig á dansgólfið.
Vikan gekk , eins og allar aðrar vikurnar fáránlega hratt., og áður en við vitum af er komin fimmtudagur. Á fimmtudaginn kom Kristín, vinkona hennar Höllu til okkar og þá var farið, eins og alla aðra fimmtudaga á Buddy Holly, rölt aðeins á milli staða og enduðum , eins og alltaf , á uppáhalds staðnum okkar, 7/11 með pulsu í kjaftinum.
Á föstudaginn gerðist ég það fræg og skellti mér í klukkutima strætóferð bara til þess að sjá Birtu standa í Bauhaus í rauða vestinu sínu og segja 197,75 á dönsku (algjörlega þess virði)
um kvöldið fórum við í stúdentsveislu til Dennis, ennþá meira rugl, ennþá meiri bjór.
Laugardagurinn var semí sá besti í heimi. Fórum á Grøn Koncert í hellirigningu, en djöfullinn ég hef aldrei skemmt mér jafn vel. Við á tónleikum, í grænum regnjökkum, með bjór í hönd að dilla (eða meira svona MISSA OKKUR) yfir Nik og Jay.
Fórum heim eftir tónleikana og gerðum okkar sætar, fórum i party og svo í bæinn.
Þegar við vöknuðum á sunnudaginn , gjörsamlega búnar á því eftir þriggja daga djamm var ekkert annað í boði en að fara í sturtu og gera sig tilbúnar fyrir enn aðra stúdentsveislu, þar urðu menn mis-ölvaðir, en ég og Halla höfum sýnt það núna og sannað að það er líkamlega og andlega hægt að fara að djamma og síðan beint í vinnuna, það var erfitt, en það tókst. Það besta var að þegar við vorum á röltinu upp í strætó klukkan 6 á mánudagsmorgninum heyrðum við lika þessi hrikalegu öskur og læti frá ströndinni (segjum bara að Birta og Kristín komu heim klukkan 7 með sand uppí rassgatinu)
Í gær var síðasta kvöldið hennar Kristínar , við vorum bunar að fá frí á þriðjudeginum þannig að við settumst við ána og fengum okkur bjór, kíktum svo á Buddy og já, fengum okkar meiri bjór.
Ég kalla mig hetju fyrir að hafa lifað þessa helgi af.
Í morgun var sorgarstund, en hún Kristín okkar Jónsdóttir kvaddi Skovvejen fyrir fullt og allt (þannig er þetta bara, menn þurfa líka að fá sitt djamm á Rhodos) og í dag föttuðum við að þetta er allt saman að verða búið. Ég fæ í magann bara við það að skrifa það hérna. Mjög skrýtið að hugsa til þess að núna sé Kristín bara komin heim, hámandi í sig fisk og banana og vonandi loksins búin að fá sinn skammt af próteinum. Það verður reyndar gott að komast heim í rúmið sitt og maður er farin að sakna mömmu smá, en ég veit að ég á eftir að sakna þess svo mikið að vera hérna með stelpurnar gjörsamlega uppí rassgatinu á mér 24/7.
Við ætlum að fara til Kaupmannahafnar næstu helgi, sem þýðir það að þarnæsta helgi er síðasta helgin okkar hérna því að Halla fer heim 8. En ég og Birta stingum af til Barcelona 9.ágúst. Þar ætlum við að liggja og tana ásamt Stellu og fararstjóranum Eydísi Sigurðar í 10 daga. Það verður geggjað, reyndar er ég alveg komin með ógeð af Birtu, en það er kannski bara af því að hún er ekki búin að fara í sturtu í 8 daga.
Hilse


júlí 24, 2008 klukkan 12:06 am
hahaha vá þetta er snilldar blogg! ég er búin að vera heima í einn dag og ég er strax farin að sakna ykkar! úff….en djöfull var samt gott að koma heim! sofa í hlýju hreinu mjúku rúmmi
og setja diskinn sinn í vélina eftir morgunmatinn, helvíti gott shitt! annars bara hilsen frá Íslandi
júlí 24, 2008 klukkan 4:02 pm
vá en skrýtið.. það er svo stutt síðan þú fórst að ég bíð bara eftir að ég heyri sturta niður og þú komir af klósettinu. þú ert svo sannarlega ennþá hérna í hjörtum okkar.
Annars bara same old, svaf oní svitafílunni af birtu í nótt, fór í sveittu fötin mín í morgun, er að fara út í skóg (það er KLIKKAÐ veður) , vaskurinn fullur og maturinn búin, þannig að ég og birta ætlum út að borða í kvöld.. haha, og svo veistu hvað gerist á fimmtudögum .. SJÖfaldur cultari á Buddy og Ali í eftirmat ..
vá.. ég get ekki farið heim
hilse
júlí 28, 2008 klukkan 7:49 am
hahaha tid erud svo steiktar!
Skemmtilegt blogg
Hlakka til ad sja ykkur eftir 12 daga