Hva saaa

júní 6, 2008 af arhus08

Den her blog skal være på dansk, okay get ready

I aften gik vi til Pakhuset og mødte vores danske og lækre venner som hedder Thomas og Cilas.

Nu sidder vi alle sammen på skovvejen, snakker om Shakespeare, politics and last but not least – the beatles. Birna og Birta er ikke hjemme nu fordi de er med nogle andre danske kammerater.
First break of rule number one – ikke tage danske drenge med hjem på skovvejen haha undskyld piger
Kristin og Halla broke it – badass 4 life hahhaa

Hiiiiilsen fra skovvejen

Hello upper eastsiders

júní 5, 2008 af arhus08

Já, já, já, það má segja að það sé allt að verða brjálað hérna á Skovvejen. Frekar helluð sleikfest hér í gær og þótt víðar væri leitað

Þetta helst:
-Strákarnir Christian, Morten og tvíburarnir Simon og Emil komu í fest í gær og var dansað drukkið og rappað. (þó aðallega á dönsku frekar en íslensku).
-Kíkti svo í soul music fest hjá góðvini mínum Niklas “italiano” Gejel sem var mjög gaman:)
-Kristín hefur verið krýnd Munchmeister ferðarinnar fyrr og síðar (24/7 á 7/11)
-Marta kíkti í heimsókn á Skovvejen og mun hún ábyggilega líta í innlit aftur við tækifæri.
-Halla var að lave pölser sem þýðir einmitt að skíta en ekki elda pulsur. Flott Halla haha

Framundan:
-Munich tónleikar í aften
-vinna á mánudag, a.k.a. ég og Birna fáum vinnuföt og öryggisskóbúnað, haha þetta verður eitthvað skrautlegt.
-50 danskar útskriftarveislur
- en samt mest chill og bjór og chill og sígó

gider ikke mere

until next time,
XoXo
Hally girl

.

júní 2, 2008 af arhus08

Jæja, þá erum við bara 4 eftir í litla kotinu okkar. Sitjum úti á svölum í 26 stiga hita að ná síðustu sólinni á svölunum. Ég, Halla beib í sígó og Birta með snakkpokann í vinstri. Og fyrir Århus-fans þá sitjum við á svölunum okkar og horfum beint niður á Broen. Getum nánast spottað gæjana héðan og labbað beint niður.
Dagurinn í dag var of góður. Sváfum reyndar aðeins og lengi en til stóð, en um 12 leytið stukkum ég, Kristín og Halla út að skokka. Tókum góðan hring í skóginum hérna fyrir ofan okkar, fórum síðan heim, skelltum okkur í bikíní, drógum Birtu úr snakkpokunum og fórum í lautarferð í skóginum. Lágum þar á teppi og tönuðum í um 30 stiga hita. Fundum síðan ströndina, en hún er hérna eiginlega bara úti í garði hjá okkur, og okkur til mikillar ánægju þá líka naked-beach hérna. Við þangað á morgun.
Á laugardaginn fórum við og grilluðum í garðinum hjá Fanney, og áður en við vissum af sátum við umkringdar skyrtuklæddum 26 ára karlmönnum sem höfðu mjög gaman af því að heyra um Bláa Lónið, Gullfoss og Geysi, íslenska hesta og Eurovision. Þaðan fórum við í bæinn og enduðum, eins og svo oft áður annaðhvort á einhverjum sveittum pizzastað eða heima inní eldhúsi á munchinu.

Síðustu daga er búin að vera engin venjuleg könguló inná baði hjá okkur og hvorki höfum við farið á klósettið , né nefnt klósettið í 3 daga. Ég var farin að halda í mér þangað til ég var gjörsamleg að springa og hlupið síðan niður til nágrannans að pissa. Við höfðum alltaf ætlað að taka af skarið og vorum alltaf mættar með hárspreybrúsann í einni og ryksuguna í hinni en um leið og við opnuðum hurðina inn á baðið, litum á kvikindið þá fór um okkur hryllingshrollur og við lokuðum hurðinni aftur. Þetta var engin venjuleg könguló, þetta var real human flash eater með risa búk, loðin og með tvær hvítar doppur (sem í rauninni segjir sig sjálft að þetta var stórhættuleg könguló) En í gær var nóg komið, Halla Sveins tók af skarið og notaði hvorki meira né minna en heilan hársprey brúsa á kvikindið, en hún var ennþá sprelllifandi þannig að við prufuðum aceton og meira sprey og þegar við héldum að hún væri alveg dauð ryksuguðum við hana. En hver veit, kannski er hún bara að djamma inni í ryksugunni okkar.
Annars er Birta að brillera á kassanum í Bauhaus, við bíðum spenntar eftir að hún verði valin starfsmaður mánaðarins og vinni pulsuveislu. Við erum gjörsamlega búnar að vera með bjórinn í höndinni síðan við komum (án djóks) þannig að við tókum því bara rólega í gær og örugglega líka í kvöld, en ætlum út að borða í tilefni þess að Eydís sé mætt til Eindhoven og hafi fengið þennan rosalega fína bíl til þess að ferðast á, þá þarf hún allaveganna ekki að labba á McDonalds, getur bara farið beint í bílalúguna.

Ætla að skella mér í sturtu. I’m out frá svölunum på Skovvejen.
Birna

the icelandic back are chicks in town

maí 29, 2008 af arhus08

Þetta líf er of gott til að vera satt.

Birta kom með þær yfirlýsingar í fyrrdag að við ættum sko allar að muna hvaða tannbursta við ættum, því að hún hefði verið að kaupa sér nýjan og mundi ekkert hvernig hann liti út. Jújú, við létum þessa sögu fljúga í gegnum hitt eyrað alveg eins og gubbsöguna hennar stellu, en eftir góðar 3 mínútur heyrum við öskur úr eldhúsinu og þá gjörsamlega liggur Birta ofan í vaskinum half ælandi úr hlátri og líka vegna þess að hún hafði óvart tekið tannburstann hans Benjamins og burstað rækilega í sér tennurnar. Þetta náðist á myndband og er án efa með því fyndara sem ég hef séð á ævi minni. Þessi Benjamin er svo mikið legend hérna að ég er að hugsa um að koma aftur til DK um jólin, bara til þess að heimsækja hann.

í gær röltum ég, Halla og Heiða í vinnuna til Fanneyjar, á kaffihúsið forlæns&baglæns. Det var dejligt, fengum okkur mohito og tókum siðan strætóinn heim ( og já, það er töff að taka strætó í danmörku)

í morgun vöknuðum við snemma, tókums strætóinn lengst uppí sveit , fundum skattstofuna og sóttum um danska kennitölu og skattkort – og djöfull vorum við stoltar af okkur. Bara orðnar danskar ha.

Náðum síðan aðeins að rölta í bænum, einu sinni í H&M á dag kemur skapinu í lag, það segji ég alltaf. Kristín og Birta þurftu siðan að mæta á einhvern fund í Bauhaus, þannig að ég rölti aðeins ein í bænum og þegar ég kom heim var Halla nýkomin úr svaðilför á línuskautunum. Kellingin var að worka rassinn en ég lagði mig bara.

Planið í kvöld er nokkurn vegin svona – Ætlum að elda hérna, Stella, Heiða og Fanney ætla að koma í stelpudinner, cult shaker, ætlum að hitta strákana á einhverjum stað, cult shaker, (Christian, Sören, David og Dennis) já, og ég er að springa ég er svo spennt. Svo fáum við okkur örugglega nokkra cult shakera.

Annars erum við bara búnar að vera nokkuð rólegar. verðum samt að passa okkur á að anda ekki of hátt hérna inni, því það heyrist allt í gegnum veggina. Ég og Birta vorum aðeins of háværar á skype á þriðjudagsnóttina að aumingja maðurinn fyrir neðan okkur gat ekki sofið. Eydís, ég vil kenna þér um þetta allt saman.

En héðan í frá, ætlum við að hætta að tala inni í íbúðinni.

Gaman væri svo að heyra í ykkur strákar í Köbenhavn, Búi og félagar. Hvernig er ?? Það eru allir að spurja hvenær þú kemur , það verður sannkölluð fest þegar the icelandic legend stígur fæti til Århus, þannig að .. get going

Það væri kannski líka gaman að heyra í þér – Erna Guðrún!! Perla og Eydís eru búnar að fá hérna útsýnisrúnt um íbúðina á Skype, og Lára !! þú verður að fá þér Skype!!!

Birna

Tirsdag er den nye fredag!

maí 28, 2008 af arhus08

Sit hérna við gluggann með útsýinið yfir höfnina og Búi this is for you – við sjáum partýskipið okkar Broen from the balconies! haha

Gærdagurinn var á þessa leið: Birta og Kristín stukku niðrá horn í Bageriet og keyptu boller og með því, fórum svo niðrí bæ og röltum í blíðskaparveðri á hlíranum og fengum okkur Kebab hjá Lars í fyrsta og síðasta skiptið eftir Kebabsöguna hennar Stellu, takk Stella.
Áður en við vissum af var klukkan orðin syv og ég Birna hlupum í Super Brugsen og keyptum masser af kasser af öl! chica chica ching
Ferðinni var heitið á Ánna að hitta Christian, Heidu, Simon og Coby og það sem tók á móti okkur var “fjóra stóra bjóra og Legobil” :D
Átti að vera tiltölulega rólegt kvöld sem endaði svo á Buddy Holly! A.k.a Happy Hour, a.k.a. dansgólf með súlu, a.k.a. not clever! Baha og Birna öskrandi um bæinn “The Icelandic backs are chicks in town” HAHA:D

Yes, that is why we say my friends, tuesday is the new friday

Vi ses senere

//H

Hva så !

maí 26, 2008 af arhus08

Það er ekkert annað, eftir næstum árs bið þá get ég loksins sagt að við erum komnar! Tár voru felld í Leifstöð, en þó aðallega tár Eydísar Eindhoven-meistara sem mynduðu læk til Keflavíkur, en við DK piger létum það ekki stöðva okkur og héldum af stað í þetta mikla ferðalag, þó án Eydísar, en það er önnur saga. Fengum smá forsmekk á dönskunni uppá velli, sem ég var búin að bíða eftir í marga mánuði, Stella elti okkur með cameruna, Birta keypti sér Tímó, Stella tjáði hversu mikið henni fyndist gubb fyndið og þegar lítil stelpa fyrir aftan okkur í vélinni þurfti að æla ætlaði Stella ekki að hætta að öskra úr hlátri, ég og Birta fögnuðum HEYA NORGE við lítlum fagnaðarlátum flugfreyjanna, enda voru þær einnig í beinni í camerunni hennar Stellu. 

Þetta er náttúrulega engan vegin fyndið, en þegar við komum heim kemur út heimildarmynd um þessa ferð, sem Stella ætlar að klippa í sumar. enda hefur hún ekkert annað að gera. 

Þegar við vorum búnar gjörsamlega að æla úr hlátri á Burger King í Köbenhavn og fæla flest alla viðskiptavini í burtu hófst lestarferðin mikla, sem tók um 5 tíma – en það var allt í lagi, því Stella var með nesti. og þá er ég að tala um flatkökur með hangikjöti, banana, lífræna sveskjuköku og abt mjólk. Birta fékk síðan afmælisgjöfina sína í lestinni – en það var fjórar séríur af hinum geysivinsælu þáttum Legend of Rin Tin Tin.

Eftir að hafa hlegið okkur máttlausar á þessum 3 tímum sem við höfðum verið í Danmörku stigum við út på Banegårdspladsen og þá var það official – The Icelandic chicks were back in town (okei, kjánalegt) 

Við fundum loksins íbúðina okkar og áður en ég náði að sækja lykilinn og opna hurðina, tókst Birtu að rota saklausan hjólreiðamann sem átti leið hjá. 

Þegar inn var haldið hófust fagnaðarlætin og þeim ætlaði ekki að linna fyrr en við komum auga á klósettið úti á gangi. Hún Margrét vinkona mín, danadrottning hefði aldrei skellt sér á þessa setu og segjum bara að Birta ætli að halda í sér í 3 mánuði. 

Við skelltum okkur á Pizza Hut, sveittar sem aldrei fyrr. (Dísa, þú þekkir þetta) Halla fór heim til Fanneyjar, Stella til Péturs og við, Birna, Birta og Kristín héldum heim á leið með tvöfalda vindsæng á bakinu, bjórinn í hægri og loftpumpuna í vinstri. 

En við 3 erum þá allaveganna búnar að koma okkur ágætlega fyrir, Birta og Kristín eru sofnaðar – menn þurfa að mæta í vinnu snemma í fyrramálið, þeir byrja nefninlega snemma þarna í Bauhaus. En ég, já ég ætla bara að fá mér annan bjór og ef til vill skella honum Rin vini mínum í tækið.

Dagurinn á morgun hljómar svo eitthvað í þessa áttina – koma okkur fyrir, cult shaker, kíkja í H&M, cult shaker, Heiða ætlar að koma í heimsókn, cult shaker, stelpudinner, cult shaker, hitta strákana, cult shaker. 

Þetta átti nú bara að vera stutt og laggott, enda bara búin að vera í danmörku í u.þ.b 8 klukkustundir, en við vitum líka að þú bíður spennt Eydís, og við bíðum líka spenntar eftir síðustu helginni í júní, eða var það fyrsta helgin í júlí ? DJÖFULL ER ÉG SPENNT !! 

6 dagar!

maí 20, 2008 af arhus08

Ég vildi bara minna ykkur á stelpur að það eru 6 dagar í Aarhus 08 08!! mhmmm:D

Næsta blogg verður skrifað í Dk

Vi ses piger:D